Vinnuslys

Bætur vegna vinnuslysa

Hafir þú lent í vinnuslysi á vinnutíma kannt þú að eiga rétt á bótum. Ekki skiptir höfuðmáli hvort að þú hafir ollið slysinu þar sem launþegar í flestum tilvikum rétt á bótum vegna vinnuslysa. Réttur þessi er tryggður í kjarasamningum og felur í sér bótarétt úr slysatryggingu launþega og sjúkratryggingum Íslands.

Verði orsök vinnuslyssins rakin til atvika sem vinnuveitandi ber ábyrgð á, kann vinnuveitandinn að bera bótaábyrgð vegna slyssins og hægt að beina kröfu að honum og eftir atvikum tryggingafélagi á grundvelli ábyrgðartryggingar vinnuveitanda.

Hafðu samband strax og við skoðum málið fyrir þig.
Fyrsta viðtal er án endurgjalds.

Hægt er að hafa samband í síma: 551-8660 – eða bóka viðtal hér.

Algengar spurningar

Fyrsta viðtal lögmanna er þér að kostnaðarlausu og þarft þú ekki að greiða neinn lögmannskostnað á meðan málið er í ferli.

Sé fallist á bótaskyldu og bætur komi til greiðslu er lögmannskostnaður gerður upp samhliða bótauppgjöri en í flestum tilvikum er stór hluti lögmannskostnaðar í bótamálum vegna bílslysa og umferðarslysa greiddur af hinu bótaskylda tryggingafélagi.

Hafni tryggingafélag bótaskyldu kann að þurfa að leita til dómstóla með málið, en í slíkum tilvikum er sérstaklega samið um lögmannskostnað við umbjóðendur okkar.

Þeirri spurningu er ómögulegt að svara með almennum hætti þar sem það ræðst af aðstæðum í hverju máli fyrir sig. Þess vegna bjóðum við þér að bóka viðtal hjá okkur þar sem við förum betur yfir málið og svörum þeirri spurningu fyrir þig, þér að kostnaðarlausu.

Scroll to Top
Hringdu í okkur